Pappírsblómasmiðja | Búum til fallega Garðasól

Borgarbókasafnið Sólheimum: Pappírsblómasmiðja
Búum til fallega Garðasól
Fimmtudagur 19. september 2024

Langar þig að læra að búa til fallega Garðasól úr ítölskum gæða kreppappír sem mun gleðja augað um ókomin ár?
Katrín Oxley frá BOUQ pappírsblóm leiðir smiðju í gerð pappírsblóma. Smiðjan er fyrir byrjendur sem lengra komna.

Hið dásamlega íslenska sumar með öllum sínum litbrigðum og miðnætursól var Catherine innblástur þegar hún valdi íslensku Garðasólina fyrir þessa smiðju. Þátttakendur fá leiðsögn í tækninni sem snýr að gerð pappírsblóma; hvernig hægt er að móta þau sem best svo þau endurspegli lifandi blómin.

Katrín Oxley er kanadíska listakonan á bak við BOUQ pappírsblóm og býr yfir 25 ára reynslu í tísku-, sjónvarps- og kvikmyndaiðnaði. Fjallað hefur verið um verk hennar í vinsælustu morgunsjónvarpsþætti Kanada, City TV's Cityline og tímaritum eins og La Botanica (NY Milan), Food & Drink, Wedding Bells og Today's Bride.

Smiðjan mun fara fram á ensku og er ókeypis skráning er nauðsynleg og hefst 1. september hér að neðan.

Allt efni er innfalið.
Unnið verður með ítalskan gæða kreppappír frá Carte Fini en þátttakendur eru beðnir um að taka með sér beitt skæri. Takmarkaður magn af skærum verður til sölu á staðnum.

Viðburður á heimasíðu Borgarbókasafnsins: https://borgarbokasafn.is/.../pappirsblomasmidja-buum-til...

Viðburðurinn á Facebook

Nánari upplýsingar veitir:

María Þórðardóttir, sérfræðingur
maria.thordardottir@reykjavik.is | s: 411 6160