Námskeið í Gerð Bóndarósar úr Pappír - Hönnunarsafn Íslands, Garðabær, Iceland
Námskeið í Gerð Bóndarósar úr Pappír - Hönnunarsafn Íslands, Garðabær, Iceland
Ekki tókst að hlaða framboði á afhendingum
.
Námskeið í gerð bóndarósar úr pappír
Tveggja daga pappírsblóma upplifun í Hönnunarsafni Íslands
Vertu með listakonunni Catherine Oxley á notalegu námskeiði í Hönnunarsafni Íslands í Garðabæ þar sem við munum búa til gullfallega bóndarós úr pappír.
Dagar
Fimmtudagurinn 5. nóvember og föstudagurinn 6. nóvember
Tími
Kl. 14:00–17:00 báða dagana
Staðsetning
Hönnunarsafn Íslands, Garðabæ Garðatorg 1, 210 Garðabær
Erfiðleikastig
Engin fyrri reynsla nauðsynleg
Það sem þú munt skapa
Á tveimur dögum munt þú hanna og skapa þína eigin stóru bóndarós (e. Top Brass Peony) allt frá fyrsta krónublaðinu til hinnar glæsilegu miðju.
Þú munt læra:
• Að móta og skapa raunsæja áferð á krónublöð bóndarósar
• Aðferðir við að búa til hina sérstöku fylltu miðju („bomb“-gerð) sem einkennir „Top Brass“ afbrigði bóndarósa
• Að blanda liti til að ná fram litapallettu sem samanstendur af fílabeinshvítum, fölbleikum, bleikum og gullgulum tónum
• Að setja blómið saman, raða blöðunum og ganga frá því svo úr verði þétt og lifandi blóm
• Að ganga frá blóminu svo hægt er að sýna það heima, gefa sem það gjöf eða er upphaf að stærri blómainnsetningu
Þú ferð heim með fullbúið listaverk – og þá færni sem þarf til að halda áfram að skapa.
Fyrir Byrjendur
Námskeiðið er opið öllum, er hvetjandi og sérstaklega sniðið að byrjendum. Engin fyrri reynsla af pappírsblómagerð, föndri eða listsköpun er nauðsynleg. Ég leiði þig í gegnum hvert skref fyrir sig með skýrri sýnikennslu, stuðningi og nægum tíma til að gera tilraunir.
Komdu ein/n/tt, taktu vin með eða gefðu einhverjum sem elskar blóm, hönnun eða skapandi upplifanir þetta námskeið í gjöf.
Takmarkaður fjöldi plássa er í boði til að tryggja persónulega upplifun og góða leiðsögn.
Athugið: Allur efniviður eru innifalin, en við biðjum ykkur vinsamlegast að taka með ykkur beitt skæri á vinnustofuna.
UPPLÝSINGAR UM NÁMSKEIÐIÐ
Endurgreiðslur og Afbókanir
Við undirbúum efnivið fyrirfram fyrir hvern þátttakanda af mikilli kostgæfni og getum því ekki boðið upp á endurgreiðslu vegna afbókunar eða skróps. Við þökkum skilninginn! Hins vegar er heimilt að framselja þátttöku til annars viðtakenda, að því gefnu að okkur sé tilkynnt um það skriflega fyrir viðburðinn. Ekki er hægt að færa skráningu yfir á síðari viðburð.
Deila
