Borgarbókasafnið Kléberg: Pappírsblómasmiðja

Borgarbókasafnið Kléberg: Pappírsblómasmiðja
Búum til fallega Garðasól
Fimmtudagur 26. september 2024

Langar þig að læra að búa til fallega Garðasól úr ítölskum gæða kreppappír sem mun gleðja augað um ókomin ár?
Katrín Oxley frá Pappírsblóm BOUQ leiðir smiðju í gerð pappírsblóma. Smiðjan er fyrir byrjendur sem lengra komna.

Hið dásamlega íslenska sumar með öllum sínum litbrigðum og miðnætursól var Catherine innblástur þegar hún valdi íslensku Garðasólina fyrir þessa smiðju. Þátttakendur fá leiðsögn í tækninni sem snýr að gerð pappírsblóma; hvernig hægt er að móta þau sem best svo þau endurspegli lifandi blómin.

Katrín Oxley er kanadíska listakonan á bak við Pappírsblóm BOUQ og býr yfir 25 ára reynslu í tísku-, sjónvarps- og kvikmyndaiðnaði. Fjallað hefur verið um verk hennar í vinsælustu morgunsjónvarpsþætti Kanada, City TV's Cityline og tímaritum eins og La Botanica (NY Milan), Food & Drink, Wedding Bells og Today's Bride.

Smiðjan mun fara fram á ensku og er ókeypis skráning er nauðsynleg og hefst 15. september hér að neðan.

Allt efni er innihaldið.
Unnið verður með ítalskan gæða kreppappír frá Kortalok en þátttakendur eru beðnir um að taka með sér beitt skæri. Takmarkaður magn af skærum verður til sölu á staðnum.

Viðburður á heimasíðu Borgarbókasafnsins: https://borgarbokasafn.is/vidburdir/fraedsla/fullbokad-pappirsblomasmidja-buum-til-gardasol

Viðburðurinn á Facebook

Nánar upplýsingar veita:

María Þórðardóttir, sérfræðingur
ulfarsa@borgarbokasafn.is